Tuesday, April 17, 2012

11-17 Apríl

 Hæ hæ ..
Ég fór á Leadership weekend í Life Uneversity um helgina og ég er ekkert að grínast ég ætla að verða kíróprkator. Þau náður svo að sanfæra mig, þetta er basically allt sem ég trúi á og hvef verið að pæla í síðustu ár.
Ég vissi ekki að kýrópraktor snérist svona mikið um að hjálpa líkamanum að laga sig sjálfur og númer 1,2 og 3 heilbrigðan lífstíl, hollt mataræði og hreifingu. Við eigum ekki alltaf að moka í okkur pillur til að deifa verkinn, þá erum við ekki búin að lækna neitt ! Maður þarf að komar að rót vandans og hjálpa líkamanum að gera við sig sjálfur. Og svo auðvitað fyrirbyggja að skíkt komi (aftur) upp með því að lifa heilbrigðu líferni.
Nú er bara málið hvernig ég ætla að boga þennan FÁRÁNLEGA dýra skóla :S En það kemur í ljós... ég ætla í þetta nám ;D


Hér er e-ð sem ég boðaði í vikunni + Tommi sæti.
Túnfisk-nachos salat: túnfiskur, tómatar, paprikka, spínat, nachos og grænt pestó.
Kjúkklingur: kjúlkingaborgari hitaður á pönnu, tómatar, avókató, döðlur, sinnep, og baunir með salti og smjöri ;P

Pestó-döðlu-feta-kjúkkingurinn minn heppnaðist svo vel um daginn að Anna bað mig um að gera hann aftur um helgina. Og nú tók ég sko myndir ...
Byrjaði á því að búa til grænt pestó. Sem ég lærði hjá henni Ebbu minni : http://mbl.is/frettir/innlent/2012/03/13/allir_elska_thetta_pesto/
Afsakið hvað dollan er skítug á hliðunum, kannski sumum sem finnst það ógirnó :S .. en það er gott :)

 Svo var það bara skera sætar kartöflur, bokkolí og lauk og setja í fat með ólífuokíu og svo sett í líka smá soya. Smyrja pestói á kjúkklinginn, dreifa döðlum yfiri og svo ostinum. Þetta fer bæði inn í ofn í svona 40-45 mínn.
Bara svo allir viti það, þá er þetta rétturinn hennar mömmu, þannig hún kendi mér hann ! ;)
Vola ... frekar girnó ;P

 Ég var svo að ljúka við að borða þessa æðislegu brokkolísúpu núna í hádeiginu, en þetta er afgangur frá kvöldmattnum í gær.

Vona þetta vidieo virki, en þetta er Tommi að segja Heiðdís !! :D
Takk fyrir að lesa og hafið það gott ... - Heiðdís Anna

Tuesday, April 10, 2012

1-10 Apríl

Ástæðan fyrir því að ég ákvað að bolgga um daginn var sú að ég er búinn að finna þessa snilldar síðu : http://www.navitasnaturals.com/
 .. en ég gleymd svo bara að segja ykkur frá henni. Hún er með fullt af skemmtilegum uppskriftum, sem ég er reyndar ekki búin að prófa en er búin að lesa margar og lýs úber vel á ;) Og svo eru þarna nokkrar vörur til sölu. Svo var mamma að benda mér á þessa síðu http://www.heilsubot.is/ sem er líka mjög fróðlegt að skoða. Þar getur þú lesið þér til um allskonar matvæli.

Gareth fór til evrópu fyrir nokkrum dögum og kemur heim aftur á fimtudaginn. Á meðan er búið að vera nóg að gera hjá mér og Önnu. Við fótum meðal annars með strákana í legó-land þar sem Liam var alveg í skýjunum og kom bara aðeins of svettur út :) Þar gat maður búið til sinn eigin bíl og síðan var keppni hver rynni hraðast niður. Eins og þið sjáið þá bjó ég til flottasta bílinn fyrir Liam Óla. Hann var samt mjög sáttur, enda vann hann næstum alltaf !!




 Ég og Anna nýttum svo tækifærði og bjuggum til blómkáls-pízzu. Hjómar kannski ekki vel, en ég lofa þetta var æði ! Meira seigja Liam sá ekkert athugavert við þetta. Enda er botninn næstum bara blómkál, egg og OSTUR ! Þar sem ég elska ost, aðeins of mikið, féll þessi pizza líka vel í kramið ;D


Svo komu páskarnir, mamma hennar Önnu, Sólveig, sendi okkur nokkur lítil páskaegg svo þegar ég kom niður var búið að fela mitt og Laim leiðbeindi mér með heit eða köld þar til ég fann loksins eggið :) Ég borðaði reyndar ekki mitt en ég las málsháttin " Bráðir eru barns hugir", Liam borðaði hinsvega hitt með bestu list. Anna bjó svo til þessa sjúku dýfu sem samanstendur af baunamauki, salsa, sírðum rjóma, gvakamóle, tómötum, osti og kóríander, sem við ætluðum svo að taka með okkur ásamt snakki í matarboð til Söru og Badda. Þegar það er verið að koma öllum út í bíl legg ég dýfuna í farðegasætið frammí og fer svo að hjála Liam að spenna beltið á meðann Anna er að tína dót í bílinn kemur þá ekki þessi hundur hlaupandi og inn í bílinn stígur á dífuna og beint afturí til strákana. Það sauð úr okku Önnu !! við vorum þegar aðeins í seinni kantinum og hversu frábært væri það ef hundur væri búin að skemma þessa sjö laga geðveikt góðu dýfu !! En sem betur fer var álpappír yfir henni svo hún skemmtist ekki og nágranarnir (hunda eigendurnir) gátu aðeins andað léttar ;) Síðustu daga er hinsvegar búið að vera aðeins of gott veður. Svo ég er bara búin að reyna nota tímann til að tana ;)





Eitt kvöldið þegar ég var að passa strákana fékk Liam að dressa mig upp. Hann hefur auga fyrir hvað er flott strákurinn !
Bannað að gera grín, en þetta er það sem ég geri þegar ég lendi á rauðu ljósi ... sem gerist frekar oft btw. þar sem það er endalaust mikið af ljósum hér.

Í dag eldaði ég mér svo þessa dýrindis eggjaköku í hádeiginu og í kvöldmat eldaði ég svo pestó-döðlu-feta kjúkling með sætum kartöflum og lauk ummm :P Því miður tók ég einga mynd af því, svo þið verðið bara að ímynda ykkur hversu girnilegt það var :)

See you later people !!

Saturday, March 31, 2012

Lok mars

Tommakrúttið átti afmæli í firradag og fékk fullt af flottum gjöfum, meðal annars einn flottan pakka frá mér og Liam ásamt flottasta kortinu sem Liam teiknaði fyrir bróður sinn. Liam var samt stundum pínu að ruglast hver átti afmli, þar sem hann opnaði alla pakkana fyrir bróður sinn, fékk köku og fullt af nýju dóti til að leika með hélt hann stundum að hann sjálfur ætti afmæli.

Annars er búið að vera alveg geggjað veður hér síðustu daga ! 25 °C eða meira, ljúfa líf. Ég get varla ímyndað mér hvernig er að vera í kuldanum á Íslandi núna :S Veit það er ljótt að segja þetta um fallega Íslandi mitt, en ég sakna þess ekki ... en það á kannski eftir að koma ;) Sakna bara mest allra skemmtilega fólksins þar :D
Hér er svo mynd af einhverju sem ég hef verið að borða, ekkert fancy poppkex með ólívuolíu og osti, melóna og mangó. Síðan er hér líka e-ð salat. Allt frekar auðvelt, veit ekki hvot það tekur því varla að taka mynd af þessu :S Enn þetta er gott svo ég ákvað að sína ykkur ;D

Hér er svo komið að nýjasta æðinu mínu ! Súkkulaði búst. Ég er hætt að gera með netum eða möndlum en nota kókos eða möndlumjólk í staðinn, þannig það kemur kannski niðu á það sama. 
Ummm ummm ummm þetta er svo gott. Ég er búin að gera nokkrar útgáfur en allar innihalda frosinn banana, hreint kakóduft, hrátt egg og kókosmjólk. Svo hef ég sett vínber, hunang, epli, fíkjur og kanill. Það verður að vera e-ð sætuefni (döðlur, hunang, fíkjur...) annars er hann ekki góður, svo er galdurinn að setja kanill. Hann gerir gæfu muninn, fattaði það bara um daginn hvað það passar e-ð rosalega vel saman kakóduft og kanill :D



Þetta var svo borðað með bestu list með fína Íslenska harðfisknum sem mamma kom með til mín ...
Annað æði hjá mér núna er spinning. Ég fer eiginlega alltaf í spinning núna, og svo geri ég bara e-ð sjálf eftir það. Í fyrstu spinning tímunum mínum var ég alltaf að horfa á klukkuna, en núna er ég farinn að geta notið þess að vera þarna, svitna eins og brjálæðingur og hlusta á tónlistina. Næst uppáhalds er svo body pump, ég fer líka stundum í þá, mér bara finnst stundum ekki eins og maður er að taka nógu vel á þar sem maður svitnar næstum ekkert, þó svo maður sé að gera það því þetta brennur í vöðvana. 

Ég veit ekki hvort ég var búin að sína ykkur þetta en hér er til svona Siggi´s jógúrt, eða skyr. Ser er í uppáhaldi hjá mér, af sjálfsögðu. Maður reynir alltaf að styrkja íslenskt !



Góða helgi fóki ! hafið það gott :D

Monday, March 12, 2012

Mamma kom í heimsókn til mín :*

Jæja ég held það sé alveg kominn tími á blogg, svolítið langt síðan síðast... og ég vei að allir býða spenntir ;D 
Það var sko ekki misst af óskarsverðlaunahátíðinni á þessum bæ, Gareth tekur þetta mjög alvarlega svo fólki var boðið í snakk, geggjaðar ídífur og fleira og svo var veðjað á hver myndi vinna hvern titil fyrir sig. Verð að viðurkenna að ég var ekki alveg búin að kynna mér myndirnar sem voru tilnefndar nógu vel, annað en Gareth ;D ... svo ég held ég hafi tapað í þessari kosningu :( því miður.

Þar sem það er svo langt síðan ég bloggaði síðast, þá er ég auðvitað búin að borða fullt ! svo ég ætla bara stja nokkrar myndri af matnum mínum hér...




Og svo smá að dekra við sig í góða veðrinu ;)  ... ummm


 Þetta er svo það sem ég er búin að gera alla vikuna .. LÆRA ! Vá hvað ég var ekki að nenna því, trú því valla að logsing þegar ég er búin í skóla, í bili að ég þurfi að vera að læra. En það er víst það sem maður þarf að gera ef maður ætlar að komast í einhverja skóla. Ég tók svo SAT prófið á laugardaginn ... og þið viljið ekki vita hvernig mér gekk. Ég er reyndar ekki búin að fá einkunina mína, en þegar hún kemur þá ætla ég sko ekki að sýna neimun hana !! Ég á eftir að skammast mín, hef sjaldan gengið jafn ílla. En ekki að ég ætla að vera kvarta bara, þá læri ég bara á þessu og get þá bara tekið prófið aftur í maí áður en ég fer heim, og rústa því !! ;D

Mamma kom svo til mín 2. mars... ohh það var svo gaman að fá hana, búin að sakna hennar svo mikið.
Hér er hún svo flottust að horfa á mig keppa í stangarstökki. Öll dúnuð upp, því hún var að frjósa úr kulda... eins og vanarlega ;D






Við fórum svo út á borða á versta matsölustað í bænum :S en fóru bara aftur að borða seinna í vikuni, og það var geggjað ;D

 Við fengum okkur súpu og salat í whole foods eitt hádeigið, sem er uppáhalds búðin mín btw :) Það keyptum við svo þennan dírindis aspas sem við elduðum. Aðeins of auðvelt og rosa gott :D


 Annað sem ég elaks við Atlanta er veðrið ! Vel hægt að borða úti núna, sem er bara æðislet :D
Takk fyrir mig og hafið það gott...


Thursday, February 16, 2012

Vikan 10-17 febrúar 2012

Jæja, svolítið langt síðan ég bloggaði síðas svo helling búin að gerast síðan.. og af sjálfsögðu er ég búin að borða fullt fullt af girnilegum mat ;D

 Anna eldaði þessa sjúklega girnilegu og góðu súpu á fimtudaginn síðasta, ummmm. Þetta er uppskrift af www.cafesigrun.com sem er af sjálfsögðu ein af uppáhalds síðunum mínum :D Alltaf gaman kýkja á uppskrift dagsins og lesa "Vissir þú? " dálkinn.
http://cafesigrun.com/austur-afrisk-graenmetissupa-med-hnetum-og-saetum-kartoflum

Svo smá myndir af sætu strákunum sem ég er að passa, þegar við fórum að leika í dóta-park. Eða ég kalla hann það, því hann er fullur af dóti sem krakkarnir geta leikið sér með. Fólk getur komið og skilið eftir dót sem barnið þeirra er hætt að nota eða vaxið uppúr og þá geta önnur börn fengið að njóta þess, rosa sniðugt. Tómas er svo alveg að fara labba, hann er farin að geta staðið án þess að halda sér í, þorir samt ekki alveg að taka skrefin, en hann labbar út um allt með hjól eða e-ð á undan sér, svona eins og göngugrind ;D Liam er síðan duglegur að segja öllum kennurum í skólanum að ég sé systir hans. Þegar ég kom að ná í hann um daginn og hann var auðvitað að segja fóstunni að ég væri systir hans sagið ég við hann "Liam, ég er ekki systir þín, ég er bara að passa þig" og hann e-ð "Nei, þú ert systir mín og ég er bróðir þinn" :S

Ég er svo búin að vera dugleg að búa mér til svona sjeika. Set hnetur eða möndlur í varn og geymi yfir nótt. Það fer svo í blandara, með frosnum banana, hráu eggi, vatni og svo er misjaft hvað ég set annað, jarðaber, kakóduft og um daginn fann ég einhverja töfra karamellu. Held hún sé búin til úr lofti !! Engin viðbættur sykur, engar kalóríur, engin fita, ekkert glútein og ekkert kólistrol... What !! Hvernig er hægt að gera svoleiðis karamellu :S Mér finnst þetta pínu dularfullt, en setti þetta samt í sjeikinn minn um daginn ;)



Síðasta föstudag bjó ég mér svo til bönnukökur í hádegismat ;D 

Gerði hafradraut og skellti svo einhverju út í hann. 
t.d egg, möndlumjólk og fleira. Hrærði svo öllu  .
 Og skella því á pönnuna                                   .
   Snúa                                                             .
   Jógúrt, jarðaver, bláber og hunang til að gera
                                                                                                         þetta fullkomið :P


Bjó líka til svona múslínammi fyrir helgina:
kókosolía + hunang + kakóduft + hakkaðar möndlur + músli og svo sett í fristi ! Þetta er náttla bara nammi :D ... En það er allt í lagi svona um helgar.




Ég var ekki alveg nógu dugleg í síðustu viku í mataræinu, samt ekkert ódulgeg heldur, bara leifið mér að borða einhverjar mjólkurvörur og e-ð með hveiti og svona. En þessi vika er búin að vera algjör ofur vika ;) Hér eru svo nokkar myndir af því sem ég hef borðaði í vikunni :)







 Í vikunni var svo Valentines day. Ég fékk því miður ekkert kort, en það gerði Líam Óli hinsvegar ekki hann kom heim með fullan kassa af kortum





Hann var svo aðiens of sáttur með sábúkúlurnar sem hann fékk með einu Valentines day kortinu sínu.
Kýkti á Ásdísi um daginn og svo kom hún líka til mín í viknunni :D Hér er hún með Shaynu sem er líka í skólanum þarna.

 Ég fór svo og hitt fysrstu Au pair vinkonur mínar í gær ! Fórum í bíó. Flottasta bíó sem ég hef nokkurn tíman farið í.... risa særi, þjónar og maður gat keipt sér mat, þetta var bara svona eins og veitingarstaður. Ekkert smá flott allt :D Þær voru rosa næs .. alveg smá öðruvísi en ég og vinir mínir en ekkert smá almennilegar og auðvelt að tala við þær og kynnast þeim. Svo hver veit nema ég hitti þær aftur ;D


 Hér eru svo tvær myndir af músunum mínum að leika sér í dag

Þá er þessu langa bloggi lokið.. vona þú hafir nennt að lesa þetta ;D Góða helgi allir !!